Vellyktandi jólagjöf
Kennslustund í Ostaskóla Búrsins er fullkomin jólagjöf fyrir sælkerann í lífi þínu.
Ertu að leita að frumlegri jólagjöf fyrir fólk sem á allt? Hjá Ostaskólanum færðu handa þeim 90 mínútna kennslustund í ostafræðum hjá ostameistara Búrsins.
Í ostaskólanum eru bara ostar á námsskránni. Allt sem þig langaði til að vita en þorðir ekki að spyrja.
Þrjú námskeið í mánuði. Uppteknir og mikilvægir sælkerar velja sjálfir tíma sem hentar þeim best.
Ilmandi ostafræðsla í einn og hálfan tíma. Engar frímínútur en heldur engin heimavinna!
Skólastýra er Eirný í ljúfmetisversluninni Búrinu. Hún er eldri en tvævetra og veit ýmislegt um ostana.
Þetta segja nemendur!
Elsku Eirný!
Takk fyrir okkur. Móttökurnar og kynningin voru frábærar.
Við skólasysturnar erum nokkuð kröfuharðar og vandlátar, og þessi kvöldstund var bæði mjög fræðandi og skemmtileg.
Við mælum hiklaust með ostakynningu Búrsins!
Silla Guðnadóttir
