Vellyktandi jólagjöf

Kennslustund í Ostaskóla Búrsins er fullkomin jólagjöf fyrir sælkerann í lífi þínu.

Ertu að leita að frumlegri jólagjöf fyrir fólk sem á allt? Hjá Ostaskólanum færðu handa þeim 90 mínútna kennslustund í ostafræðum hjá ostameistara Búrsins.

Merki Ostaskólans

Bókaðu fyrir 15. desember og fáðu 10% afslátt!

Í ostaskólanum eru bara ostar á námsskránni. Allt sem þig langaði til að vita en þorðir ekki að spyrja.
Þrjú námskeið í mánuði. Uppteknir og mikilvægir sælkerar velja sjálfir tíma sem hentar þeim best.
Ilmandi ostafræðsla í einn og hálfan tíma. Engar frímínútur en heldur engin heimavinna!
Skólastýra er Eirný í ljúfmetisversluninni Búrinu. Hún er eldri en tvævetra og veit ýmislegt um ostana.
Mynd af skólastýrunni

Eirný Sigurðsdóttir er bæði skólastýra og yfirkennari Ostaskóla Búrsins

Stundataflan er komin á Facebook! Skoðaðu hana

Þetta segja nemendur!
 

Elsku Eirný!

Takk fyrir okkur. Móttökurnar og kynningin voru frábærar.

Við skólasysturnar erum nokkuð kröfuharðar og vandlátar, og þessi kvöldstund var bæði mjög fræðandi og skemmtileg.

Við mælum hiklaust með ostakynningu Búrsins!

Silla Guðnadóttir

Hópur af ánægðum nemendum í Ostaskólanum
 
Pantaðu námskeið hér

Fylltu í eyðurnar. Þú borgar bara þegar þú sækir gjafabréfið.
(Ef þú biður fallega getum við líka sent þér það í pósti.)











Hvert skólaskírteini kostar 3.400 krónur en þú færð
10% afslátt ef þú pantar og greiðir fyrir 15. desember.
Ef þú pantar fyrir 12 eða fleiri færðu líka góðan magnafslátt!
Þú getur líka hringt í okkur í síma 551 8400 og pantað
eða bara komið við hjá okkur í Nóatúni 17.