Vacherol
Vacherol er ljúfur rauðkíttsostur úr kúamjólk búin til eftir nútímauppskrift. Hann hefur þrátt fyrir ungan aldur náð að festa sig rækilega í sessi enda með skemmtilegan karakter og ekki alls ólíkur Port Salut á bragðið. Hann er þó mýkri undir tönn og eru gulrætur eru notaðar til að gefa skorpu ostsins sinn auðkennandi appelsínugula lit. Í Normandí héraði þar sem hann er framleiddur er líka framleiddur eplacíder og calvados og er tilvalið að skola ostinum niður með því. Ef njóta á ostsins án áfengis mælum við með góðu brauði og niðursneiddum eplum.
kúamjólk
frakkland
BÚRIÐ ~ The Icelandic Pantry ~ +354 551 8400 ~ Nóatún 17, 105 Reykjavík ~ burid@burid.is