Supreme „Brie“
Supreme „Brie“ er framleiddur í borginni Chablis í Burgundy héraði. Rjóma er bætt útí mjólkina við lögun ostsins sem gerir hann mjúkan og bragðið nánast smjörkennt. Osturinn er látinn þroskast í 3 vikur áður en hann er settur í sölu. Mjúkur og yndislegur hvítmygluostur sem er af Brie ættum en má ekki kallast það sökum strangra reglugerða varðandi stærð og lögun þeirra osta sem mega bera það sæmdarheiti.
kúamjólk
frakkland
BÚRIÐ ~ The Icelandic Pantry ~ +354 551 8400 ~ Nóatún 17, 105 Reykjavík ~ burid@burid.is