Saint-Albray
Saint-Albray er framleiddur úr mjólk kúa frá Jurancon sem liggur við rætur Pyrenea fjallanna. Hann er auðþekkjanlegur á blómalagaútliti sínu og rauðhvítri skorpunni. Saint-Albray hefur bæði rauðkítts og hvítmyglugerla og því ekki eins teygjanlegur og aðrir rauðkíttsostar. Hann er einstaklega rjómakenndur og með mildu camenbert bragði sem verður sterkara eftir því sem osturinn þroskast og sýnir hann þá skyldleikann við rauðkíttsosta vel. Saint-Albray er sérstaklega flottur sem uppistaða í ostabakka vegna lögunar sinnar og einnig höfðar hið ljúfa bragð hans til flestra.
kúamjólk
frakkland
BÚRIÐ ~ The Icelandic Pantry ~ +354 551 8400 ~ Nóatún 17, 105 Reykjavík ~ burid@burid.is