Roquefort
Roquefort er oft álitinn vera æðstur allra osta. Hann er látinn þroskast í rökum hellum undir þorpinu Roquefor-sur-Soulzon. Bragð hans er nokkuð rammt og stingandi en um leið ákaflega ljúffengt. Einungis mjólk úr séröldum kindum er notuð í þennan sérstaka ost. Þroskaður Roquefort er rjómakenndur, þykkur, hvítur að innan og hefur þunnan appelsínugulan börk. Þessi kóngur ostanna fer sérstaklega vel með púrtvíni og að auki er hægt að mylja hann í salat sem mun seint gleymast.
sauðamjólk
frakkland
BÚRIÐ ~ The Icelandic Pantry ~ +354 551 8400 ~ Nóatún 17, 105 Reykjavík ~ burid@burid.is