Picon de Valle
Picon de Valle er ættaður frá norður hluta Cantabríu og er sérstakur að því leiti að hann er framleiddur úr þremur mismunandi mjólkurtegundum eða geita- sauða- og kúamjólk. Hann er látinn þroskast í 2-3 mánuði í kalksteins hellum. Osturinn er stundum þekktur sem „Picon de Europa“ eða „Valdeon“ og uppruna hans má rekja til franskra pílagríma sem komu til Spánar. Spánverjar bera þennan ost oft fram með brauði og hunangi, jafnvel í morgunmat! Sætt meðlæti myndar skemmtilega andstæðu við bragð gráðosta og er því hunang, sulta eða sykurgljáð epli tilvalinn sem meðlæti með Picon de Valle. Á Spáni er til réttur sem heitir „Ástarkoss“ og er einfaldlega hringlótt ristuð brauðsneið með gráðosti og grænum vínberjum. Ótrúlega bragðgott og gæti ekki verið einfaldara.
kúamjólk
geitamjólk
sauðamjólk
spánn
BÚRIÐ ~ The Icelandic Pantry ~ +354 551 8400 ~ Nóatún 17, 105 Reykjavík ~ burid@burid.is