Grískur Fetaostur

Um BúriðUm_Buri.html
Ostar A-ÖBuri__Ostar_A-O.html
ÞjónustaBuri__jonusta.html
KortBuri__Kort.html
VörurBuri__Vorur.html
FréttirBuri__Heim/Archive.html
The Icelandic PantryBuri__Heim/Buri__Heim.html
 

 


Grískur Fetaostur hefur tilheyrt matarmenningu miðjarðarhafslandanna frá alda öðli. Uppistaðan er oftast sauðamjólk en geita- og/eða kúamjólk er stundum notuð í bland. Fyrstu heimildir um ostinn eru frá Byzantine veldinu og þá sérstaklega í tengslum við eyjuna Krít. Grikkir telja að einungis úr mjólk þarlendra kinda og geita sé hægt að framleiða hinn eina sanna fetaost og hafa barist gegn almennri notkun feta nafnsins á ostum af þessu tagi. Fetaostinn er hægt að grilla, en einnig er upplagt að laga úr honum hefðbundið grískt salat. Þá blandarðu saman tómötum, gúrkusneiðum, þunnt skornum rauðum lauk, ólífum (helst kalamata ólífum) ásamt teningum af fetaostinum.  Kryddaðu með salti, nýmöluðum pipar, oreganó og basil og drissaðu yfir ólífuolíu.



kúamjólk

grikkland

→Buri__Ostatengundir.html
til bakaBuri__Ostatengundir.html

geitamjólk

sauðamjólk