Geitagouda

Um BúriðUm_Buri.html
Ostar A-ÖBuri__Ostar_A-O.html
ÞjónustaBuri__jonusta.html
KortBuri__Kort.html
VörurBuri__Vorur.html
FréttirBuri__Heim/Archive.html
The Icelandic PantryBuri__Heim/Buri__Heim.html
 

 


Geitagouda er mildur geitaostur sem er handgerður ostur með fersku bragði og rjómakenndri en þó þéttri áferð. Osturinn er hollenskur og framleiðsla hans byggir á þekktri og aldagamalli hefð Hollendinga í ostagerð. Osturinn sjálfur er krítarhvítur á lit en það er einmitt einkenni osta sem búnir eru til úr geitamjólk. Hið mjúka geitabragð ætti að gleðja hörðustu geitaaðdáendur en hentar líka vel fyrir þá sem vilja bæta geitinni í ostaflóruna sína. Okkur finnst gott að láta Geita Gouduna útí sumarsalatið með appelsínum og ristuðum heslihnetum eða taka hana með í bústaðinn og bræða hana þar ofaná grillaðan lax.



→Buri__Ostatengundir.html
til bakaBuri__Ostatengundir.html

geitamjólk

holland