Chevre Cendre
Chevre Cendre er klassískur mjúkur geitaostur framleiddur í Loire héraði í Frakklandi. Á yfirborði hans er birkiaska sem verndar ostinn og gefur honum skemmtilegt útlit. Hinn krítarhvíti litur er einkennandi fyrir geitaosta. Þegar þú bragðar á honum færðu fyrst ferskan sítrónukeim í munninn og svo hið sérstaka geitarmjólkurbragð. Cendre er flottur á ostabakka og yndislegur smurður ofaná brauð eða kex.
geitamjólk
frakkland
BÚRIÐ ~ The Icelandic Pantry ~ +354 551 8400 ~ Nóatún 17, 105 Reykjavík ~ burid@burid.is