Brillat savarin
Brillat savarin er skemmtilegur rjómaostur frá Normandy með léttum sítrónu og jurtakeim og háu fitustigi (78%). Höfundur ostsins Henri Androueet nefndi ostinn eftir franska rithöfundinum Brillat Savarin sem sagði í bók sinni „Physiology of Taste“ að eftirréttur án osta væri eins og fögur kona sem hefði misst eitt auga. Það er því vel við hæfi að mæla með þessu osti í eftirrétt og stingum við uppá að bera fram með berjum, ferskum apríkósum og á hátíðisstundum má jafnvel láta klingja í kampavínsglösum.
kúamjólk
frakkland
BÚRIÐ ~ The Icelandic Pantry ~ +354 551 8400 ~ Nóatún 17, 105 Reykjavík ~ burid@burid.is