Vörur

Hvað erlendar vörur varðar er áhersla lögð á glæsilega breska osta eins og Stilton og cheddar, sem og osta frá Frakklandi og Spáni. Þar að auki er leitað hátt og lágt um landið allt að því besta af íslenskum mjólkurvörum, þar með talið lífrænt skyr og grískt jógúrt, sauða- og geitabrie sem framleidd eru í takmörkuðu upplagi, og betri ostar frá Mjólkursamsölunni.
Neal’s Yard ostar

Allt frá árinu 1979, þegar Neal's Yard tók til starfa, hefur fyrirtækið verið í fremstu röð í sölu handgerðra osta. Neal's Yard kaupir osta frá um 70 býlum og ostagerðarmönnum víðs vegar um Bretland og Írland og selur þá áfram til búða og veitingastaða um allan heim auk þess að selja þá í sínum eigin ostbúðum í London. Neal's Yard leitast við að vinna náið með ostagerðarfólki og viðskiptavinum sínum. Umfram allt er áhersla lögð á að sinna ostinum og þekkja hann. Býli og ostagerðarmenn eru heimsóttir reglulega og ostarnir eru smakkaðir og sérvaldir til að tryggja að þeir bestu skili sér til ostaunnenda.
Aðrir innfluttir ostar

Í Búrinu má að sjálfsögðu má finna íslenska osta, þá bestu sem völ er á. Íslensk löggjöf bannar því miður sölu ógerilsneyddra mjólkurvara og kemur það niður á úrvalinu en þrátt fyrir það bjóðum við úrval osta víða að, meðal annars frá Frakklandi, Hollandi, Ítalíu og Spáni. Frekari fróðleikur um innfluttu ostana í Búrinu er væntanlegur fljótlega.
BÚRIÐ ~ The Icelandic Pantry ~ +354 551 8400 ~ Nóatún 17, 105 Reykjavík ~ burid@burid.is