EnglishBuri_Products.html

Ostlæti

Um BúriðUm_Buri.html
Ostar A-ÖBuri__Ostar_A-O.html
ÞjónustaBuri__jonusta.html
KortBuri__Kort.html
VörurBuri__Vorur.html
FréttirBuri__Heim/Archive.html
The Icelandic PantryBuri__Heim/Buri__Heim.html
 



    Piparaldinyndi



Piparaldinyndi má nota á svo marga vegu að það er bara skylda að eiga það í skápnum.


  1. Setjið 1 msk. yfir camembert ásamt söxuðum pistasíum, fersku kóríander og 1 tsk. Límónusafa. Bakið í ofni í 8-10 mínútur við 160°C.


  1. Berið piparaldinyndi fram með mjúkum brie ásamt jarðarberjum, hindberjum og ristuðum möndlum.


  1. Skerið fjórar plómur í báta og velgið á pönnu með 1 msk. af piparaldinyndi og 2 msk. púrtvíni eða rauðvíni og berið fram volgt með primadonna, gruyere eða brie.


  1. Búið til öðruvísi pizzu: fletjið út smjördeig og penslið með piparaldinyndi, myljið ferskan geitaost yfir og bakið í 18-20 mínútur við 200°C – stráið saxaðri basilíku yfir og dreypið yfir með örlítilli ólífuolíu.

 



    Villiblómahunang með pistasíum



Hunang er ekki bara hunang. Hunang getur verið milt og sætt akasíuhunang sem á vel við kraftmikinn gráðost, margslungið kastaníuhunang sem dregur fram það besta í cheddarnum eða kryddað og bragðmikið skógarhunang með þeim osti sem er í uppáhaldi hjá þér. Villiblómahunangið völdum við sérstaklega vegna þess hversu vel það passar með mismunandi ostum.


  1. Smekkur manna er misjafn en okkur finnst best að nota hunang í hófi og helst með bragðsterkari og þurrari ostum eins og Parmigiano Reggiano eða Pecorino Romano.


  1. Einnig smellpassar það með sterkum gráðostum og bragðmiklum geitaostum.


  1. Berið villiblómahunangið okkar fram með vænum hlunk af Parmigiano og niðurskornum perum sem fullkominn endapunkt á máltíð.


  1. Villiblómahunang er kjörið út á gríska jógúrt á morgnana og dagurinn byrjar enn betur með nokkrum jarðarberjum eða sætum ferskjubitum með.


  1. Einnig er gott að dreypa villiblómahunanginu yfir bakaðan geitaost ásamt fersku timjan og bera fram með bagettu sem forrétt, eftirrétt eða smárétt í saumaklúbbinn.

 



    Gráfíkjufreisting



Gráfíkjufreisting er unnin úr fyrsta flokks sólþurrkuðum gráfíkjum, blönduðum eplum og balsamic ediki frá Modena. Besti vinur gráðosta.


  1. Berið fram með Bleu D’Auvergne gráðosti ásamt sætum og safaríkum perum.


  1. Gráfíkjufreisting fer einstaklega vel með grafinni gæs eða heitreyktri önd.


  1. Parmigianno Reggiano er ekkert illa við gráfíkjufreistinguna og dansar við hana og bragðlaukana.


  1. Blandið saman við pekanhnetur og rjómaost og fyllið Stóra Dímon, skreytið með gráfíkjum og hnetum og berið fram við stofuhita ásamt góðu kexi.


  1. Smyrjið arkir af smjördeigi með gráfíkjufreistingu, myljið sterkan gráðaost yfirog rúllið upp. Bakið þar til er orðið stökkt.


  1. Skerið bagettu í sneiðar og smyrjið með með gráfíkjufreistingu. Búið til snittur með því að bæta við hráskinku og mozzarella.

 



    Mustarðssæla



Mustarðssæla með perum of rósmarín er sérstaklega góð með villibrá, gæsalifur of bragðsterkari ostum. Svo er hún líka skemmtilegt með súkkulaðieftirrétturm.


  1. Mustaðssælan hentar einstaklega vel með mjúkum gráðostum eins og Gorgonzola ásamt valhnetum og góðu kexi.


  1. Frábær forréttur: klettasalat, eikarlauf, vorlaukur, heitreykt gæsabringa, mustarðssæla og ristaðar furuhnetur blanðað saman og borið fram á litlum diskum.


  1. Gruyere, perusneiðar og mustarðssæla er unaðslegur milliréttur, til dæmis á undan eftirréttinum.