Ostategundir
Ferskir ostar

Þeir ostar sem ekki þurfa á þroskunarferli að halda eru kallaðir ferskostar. Þeir eru oftast mjúkir, stundum kornóttir í áferð og ekki bragðsterkir í eðli sínu og því tilvalið að leika sér með þá í matargerðinni.
Rauðkíttsostar

Rauðkíttsostar kallast þeir ostar þar sem Brevibacterium linens (B-lines) er annað hvort bætt útí mjólkina á lögunarstiginu eða penslað á ostana í bland við saltvatn á lögunarstiginu. Gerillinn vinnur sig inní ostinn og bragðbætir hann og breytir áferð ostsins. Á „þvottatímabilinu“ myndast jafnan gulleit klístruð skorpa. Stundum er líka notaður gulrótarsafi, bjór eða vín til að fá fjölbreytni í skorpuna og þar með útlit ostanna. Rauðkíttsostana má þekkja á hinni einkennandi lykt sem sumum finnst skyld táfýlu enda nefna gárungarnir oft rauðkíttsostana táfýluosta í daglegu tali!
Með rauðkíttsostum henta sæt vín og þess vegna desertvín sérstaklega vel. Sem dæmi má nefna Riesling, Gewurstraminer og Sauternes.Vegna sætleika síns er hunang tilvalið meðlæti með ostum af rauðkíttsætt því hunangið dregur sérdeilis vel fram hið sérstaka bragð þeirra og ekki er verra að gæða sér samtímis á stökkum hnetum.
Blámygluostar

Eftirfarandi eru blámygluostar.
✤ Gorgonzola bítur
✤ Akureyrar gráðaostur
✤ Stilton
Fastir ostar

Eftirfarandi eru fastir ostar.
✤ Gamle Ole
✤ Gamle Ole sterkur
✤ Grana Padano
✤ Huntsman
✤ Ísbúi
✤ Maasdammer
✤ Manchego
✤ Ouwe Jongens
✤ Óðalsostur
✤ Parmiggiano Reggiano
✤ Pecorino
✤ Prima Donna Maturo
✤ Prima Donna Fino
✤ Reyktur Applewood Cheddar
✤ Sage Derby
✤ Stóri Dímon
✤ Svarta Gouda
✤ Tetilla
BÚRIÐ ~ The Icelandic Pantry ~ +354 551 8400 ~ Nóatún 17, 105 Reykjavík ~ burid@burid.is