Hnossgæti
Saffran lauksulta

Lauksulta með saffran er skemmtilegur valkostur við rauðlaukssultu sem margir þekkja. Hana má til dæmis nota með paté, grillkjöti, í matargerð og til að gera heimsins bestu samlokur.
✤ Berið fram með grilluðum geitaosti, svörtum ólífum og grófu brauði.
✤ Setjið 1-2 msk. af saffranlauksultu á stórlúðusneið og bakið í ofni. Kreistið örlítið af límónusafa yfir. Saxað kóríander fullkomnar réttinn. Berið fram með soðnum nýjum kartöflum, kartöflusalati eða kúskús.
✤ Setjið kjúklingasoð í pott, saffranlauksultu og hvítlauk. Sjóðið saman í nokkrar mínútur. Bætið við sýrðum rjóma og bragðbætið með nýmöluðum ferskum pipar. Fljótleg sósa með kjúklingi sem slær alltaf í gegn.
✤ Skerið hálfa bagettu í tvennt. Setjið kjötafganga eða góða steik að eigin vali, saffranlauksultu, plómutómata, klettasalat og gráðost eða gruyere á milli og þá er fram reidd besta steikarsamloka í heimi.
Apríkósukryddsultan

Apríkósukryddsultan er fjölnota freisting, hvort sem hún er borin fram með góðum ostbita, grillmatnum eða skellt á samlokuna. Hún er búin til úr fyrsta flokks apríkósum, eplum og lauk og að lokum er leynikryddblöndu Búrverja lætt út í.
✤ Setjið tvær matskeiðar af apríkósukryddsultu inn í svínalund og vefjið beikonsneiðum utan um. Bakið í 180 gráðu heitum ofni í 18-25 mínútur (fer eftir þykkt lundarinnar). Berið fram með kartöflumús...namm namm.
✤ Setjið apríkósukryddsultu ofan á camembert og inn í 160°C ofn í 8-12 mínútur.
✤ Skerið hálfa bagettu í tvennt. Smyrjið báða helmingana með apríkósukryddsultu og búið til langloku með því að setja góða skinku og ost á milli.
✤ Búið til kjötbollur úr lambahakki, 1-2 msk. af apríkósukryddsultu, svörtum pipar og söxuðu kóríander, 1 eggi og 1 msk. hveiti eða 2 msk. ferskri brauðmylsnu. Steikið á heitri pönnu og berið fram með kúskús.
✤ Hrærið saman rjómaosti og apríkósukryddsultu og notið sem fyllingu í kjúklingabringur. Dreypið olíu yfir, kryddið með salti og pipar og setjið inn í 160°C ofn í 20-25 mínútur eða þar til eldað er í gegn.
Epla- & rósmarínhlaup

Epla- og rósmarínhlaup er búið til úr blöndu af eplategundum til að fá fram rétta bragðið, rósmarín setur svo jurtapunktinn yfir i-ið.
✤ Búrverjum finnst sérstaklega gott að para saman epla- og rósmarínhlaup og bragðmeiri hvítmygluosta, t.d. Stóra Dímon, Kastala eða Gullost, en einnig er hlaupið skemmtilegt með mildari gráðostum eins og Fourme d‘ambert.
✤ Epla- og rósmarínhlaupið hentar sérstaklega vel með lambalærinu, bæði sem meðlæti og til að bragðbæta sósuna. Skellið 1-2 msk. af epla- og rósmarínhlaupi saman við eplin næst þegar þið bakið eplaköku.
✤ Súkkulaðikaka með epla- og rósmarínhlaupi
150 g súkkulaði
150 g smjör
6 egg
250 g sykur
75 g hveiti
3 msk. epla- og rósmarínhlaup
1. Hitið ofninn í 180°C. Undirbúið lausbotnaform (23 cm) með því að setja smjörpappír í botninn.
2. Bræðið saman smjör, súkkulaði og hlaup í örbylgjuofn eða yfir vatnsbaði, setjið til hliðar og leyfið aðeins að kólna. Ekki hafa áhyggjur þótt hlaupið bráðni ekki alveg.
3. Þeytið saman egg og sykur í annarri skál þar til blandan verður ljós og létt og hefur næstum því tvöfaldast í skálinni.
4. Bætið hveitinu varlega saman við eggin og því næst súkkulaðiblöndunni. Ekki hræra of mikið, þar sem við viljum halda blöndunni léttri og loftkenndri.
5. Bakið í 35-40 mínútur eða þar til kakan er orðin þétt að ofan en er enn örlítið blaut í miðjunni.
6. Látið síðan kökuna kólna áður en hún er tekin úr forminu.
7. Það er afskaplega gott að bræða 1 msk. af hlaupinu með 1 msk. af vatni og dreypa yfir kökuna meðan hún er ennþá volg.
BÚRIÐ ~ The Icelandic Pantry ~ +354 551 8400 ~ Nóatún 17, 105 Reykjavík ~ burid@burid.is