Haustönn Ostaskóla Búrsins
Haustönn Ostaskóla Búrsins er um það bil að hefjast og það er um að gera að bóka námskeið tímanlega; brátt er kominn tími til kúra sig heima í sófa með osta og með'eim og fela sig fyrir Vetri konungi og kuldabola. Og þá er eins gott að kunna til verka! Fróðleikur um osta og allt þeirra fylgifæði, bjór- og vínpörun; heill heimur er handan
við hornið. Eftir hverju ert þú að bíða? Hlökkum til að sjá þig!
Það þarf ekki að vera leiðinlegt í skóla og í Ostaskóla Búrsins er alltaf gaman! Mennt er máttur og ostur er æði!
Nánar upplýsingar á síðu Ostaskólans.
1.9.2010
BÚRIÐ ~ The Icelandic Pantry ~ +354 551 8400 ~ Nóatún 17, 105 Reykjavík ~ burid@burid.is